Hann laumast inn á heimili að næturlagi og gengur hljóðlaust inn í svefnherbergi þar sem konur liggja sofandi, og eiga von á að vakna upp við lifandi martröð.
Nákvæmnin í aðferðum hans bendir til þess að hann sé brjálaður maður með læknisfræðilega þekkingu, og því gefa dagblöðin í Boston honum viðurnefnið "Skurðlæknirinn".
Thomas Moore og Jane Rizzoli leiða rannsóknina og neyðast til að leita til fórnarlambs nær alveg eins glæps. Tveimur árum áður barðist Dr. Catherine Cordell á móti árásarmanni sínum og skaut hann til bana áður en hann náði að ljúka árásinni.
Nú er nýr morðingi farinn að endurskapa, af óhugnanlegri nákvæmni, hvert smáatriði úr martröð Cordell.
Með hverju nýju morði virðist hann ögra henni og færist sífellt nær - frá sjúkrahúsinu þar sem hún starfar og alla leið að heimili hennar. Og hvorki Moore né Rizzoli geta verndað Cordell fyrir miskunnarlausum veiðimanni sem virðist á einhvern hátt skilja - og njóta - ótta hvers fórnarlambs.
___
"Fyrsta flokks spennusaga ... Bók sem heldur manni vakandi alla nóttina." - Kirkus Reviews
"Óhugnanleg ... " - Chicago Tribune
"Tess Gerritsen er frábær rithöfundur." - Daily Mail
"Hún grípur mann strax á fyrstu síðu." - Lee Child
"Hrollvekjandi ?" - San Francisco Chronicle