Steikjandi heitt sumar ríkir í Boston þegar röð hrottalegra glæpa skekur borgina. Auðugir menn eru neyddir til að horfa á árásir á eiginkonur sínar áður en þeim er rænt og þær myrtar.
Glæpirnir minna óhugnanlega á aðferðir raðmorðingjans Warren Hoyt. Rannsóknarlögreglukonan Jane Rizzoli, sem ber bæði líkamleg og andleg ör eftir Hoyt, telur að lærlingur hans gangi laus.
Hún er staðráðin í að stöðva morðingjann, en málið flækist enn frekar þegar sérfulltrúinn Gabriel Dean mætir á svæðið á vegum alríkisstjórnarinnar - með leyndarmál sem hann neitar að afhjúpa.
Þegar Hoyt sleppur úr fangelsi verður Rizzoli sjálf aðalskotmarkið í banvænni hefndarherferð.
Lærisveinninn er æsispennandi og óhugnanleg saga þar sem Tess Gerritsen fléttar saman sterkar persónur, læknisfræði og lögreglurannsóknir af sinni alkunnu snilld.
___
"Spennusögur gerast ekki betri - né óhugnanlegri." - Harlan Coben
"Tess Gerritsen sýnir að hún er í sínu besta formi. Frábær og grípandi saga ... ég get varla beðið eftir þeirri næstu!" - Karin Slaughter
"Gerritsen starfaði sem læknir áður en hún hóf að skrifa og bókin geymir nógu óhugnanleg smáatriði til að halda manni frá sjúkrahúsum ævilangt. Fyrsta flokks læknaspenna sem heldur lesandanum í heljargreipum." - Mail on Sunday
"Magnþrungin og æsileg spennusaga. Gerritsen er fagmaður fram í fingurgóma." - Daily Mirror
"Rafmögnuð flétta full af ótta og óvæntum snúningum ... fyrsta flokks spennusaga" - The Guardian